Barnabónus

Þegar heim er komið

Flesta foreldra langar að komast sem fyrst heim til sín, í rúmið sitt og sitt umhverfi og hér á Íslandi er fólk svo heppið að njóta heimaþjónustu ljósmæðra. Ljósmóðir, sem þið veljið ykkur sjálf, kemur heim til ykkar fyrstu dagana og aðstoðar ykkur við brjóstagjöf, umönnun barnsins og fræðir ykkur um hina ýmsu hluti ásamt öðrum hlutum. Ef  þið eigið í erfiðleikum með brjóstagjöfina eigið þið svo líka rétt á 3 fríum heimsóknum brjóstagjafaráðgjafa á fyrsta hálfa árinu í lífi barnsins.

Reynið endilega að hvíla ykkur, nærast vel og drekka vel þegar heim er komið.
Það er ykkar að bjóða heimsóknagesti velkomna, þegar þið eruð tilbúin. Sumir foreldrar vilja eiga þessa fyrstu daga í friði, þegar konan er að jafna sig og ber fólki að virða ykkar skoðanir og óskir. Verið óhrædd við að segja fólki að það henti ykkur ekki að fá heimsók, ef  þið hafið átt erfiða nótt eða kærið ekki um heimsókn.

Verið dugleg að biðja ykkar nánasta fólk um aðstoð. Það gerir mikið fyrir þreytta foreldra að fá matarsendingar, aðstoð við heimilsþrif og þvott. Biðjið fólk að gæta fyllsta hreinlætis og spritta sig áður en það kemur, passa að þau séu í toppstandi en einfalt kvef fullorðinna getur reynst nýbura erfitt.

Mamma Hitt foreldrið Fæðingarþunglyndi Tengslamyndun eftir fæðingu Innsæið Þegar heim er komið Barnið fyrstu dagana Vandaðu valið