Barnabónus

Tengslamyndun eftir fæðingu

Strax eftir fæðingu fer af stað flókið ferli í líkama foreldra sem veldur því að ykkur mun finnast þetta litla barn það fallegasta sem þið hafið á ævinni séð. Það er þó alls ekki alltaf þannig og getur tekið tíma fyrir foreldra að skapa tengsl við barnið. Þó er það vitað, að þessi fyrstu augnablik eru mikilvæg fyrir báða foreldra og því mikilvægt að vera staddur í núinu og drekka þessa stund í sig, hún kemur nefnilega aldei aftur. Oft er fólk æst í að tilkynna komu barnsins en barnið ykkar mun sennilegast verða 115 ára svo þið hafið allan tímann í heiminum. Slakið þið á og horfið á barnið, snertið það og talið til þess þegar það fæðist. Ef þið finnið ekki fyrir þessari tengslamyndun er um að gera að ræða það við fagaðila, sem geta lagt mat á hvort þörf sé á inngripum.

Mamma Hitt foreldrið Fæðingarþunglyndi Tengslamyndun eftir fæðingu Innsæið Þegar heim er komið Barnið fyrstu dagana Vandaðu valið