Barnabónus

Mamma

Fyrstu dagana eftir fæðingu eru oft krefjandi fyrir konur, eftir fæðingu eru konur eftir sig líkamleg og skiptir miklu máli að hugsa vel um sig. Takið verkjalyf eftir leiðbeiningum frá ykkar fæðingarstað og hugsið vel um að næra ykkur og drekka vel. Flestar konur eru að gróa eftir fæðingu og þarf að huga að því að maður fái gott og heilnæmt fæði til að aðstoða líkamann við að verða samur. Prótein er gott fyrir sáragræðslu og því kjörið að passa upp á að borða prótein- og trefjaríkt fæði til að halda hægðum mjúkum og drekka vel.
Margar konur eru bólgnar að neðan og með sauma. Það getur reynst þeim mjög vel að nota „klakadömubindi“ til að hjálpa til við sársauka og bólgu (leiðbeiningar um hvernig maður gerir klakadömubindi eru á instagramminu mínu).

Það hjálpar til að hreyfa sig og stuttur göngutúr í kringum húsið getur gert mikið fyrir foreldra, ekki síst andlegu hliðina. Konur sem fæða með keisaraskurði þurfa að passa sig að fara ekki of geist af stað, en þurfa þó að reyna að hreyfa sig upp að sársaukamörkum á hverjum degi.

Fyrstu dagana eftir fæðingu blæðir frá konum, en allar konur fá úthreinsun óháð fæðingarleið en eftir fylgjuna er lófa stórt sár í leginu sem minnkar eftir því sem að legið dregst saman. Ef það blæðir mikið eða koma miklir blóðkögglar þarf að láta líta á það, eins ef það kemur slæm lykt, þú færð hita eða kviðverki. Á meðan á úthreinsun stendur skaltu gæta mjög vel að hreinlæti, þvo þér um hendur FYRIR og EFTIR klósettferðir, þvoðu handklæði reglulega og ekki nota sápu. Notaðu hreinar tíðavörur en Natracare býður upp á frábært úrval hreinna tíðavara. Ef þið viljið stunda kynlíf á meðan á úthreinsun stendur þarf að nota smokk og geymið sundlaugaferðir þar til henni er lokið. Þó er í lagi að fara í hreint bað heima hjá sér sem að getur reynst gott ef að maður er aumur að neðan.

Líkami ykkar hefur unnið kraftaverk! Hann hefur búið til og alið af sér barn, gefið ykkur tíma til að jafna ykkur.

Sængurkvennagrátur

Eftir fæðingu heldur hormónarússíbaninn aldeilis áfram, en á nokkrum dögum eftir fæðingu verður mikil breyting á hormónum í líkamanum. Stundum er talað um að þetta sé mesta breyting hormóna á svona stuttum tíma í lífi hverrar konu. Á dögunum eftir fæðingu, oftast á degi 3-5, finna konur gjarnan fyrir þessum hormónabreytingum. Einkennin eru misjöfn eftir konum og aðstæðum. Hormónabreytingar ásamt svefnleysi og streitu eru talin vera ástæða þessarra einkenna. Konur verða oft mjög viðkvæmar, grátgjarnar, finna fyrir kvíða (oft yfir heilsu barnsins) og/eða pirring og þreytu. Það er mikilvægt að fjölskyldan skilji að þetta ástand geti verið eðlilegt og hverfur yfirleitt af sjálfu sér á stuttum tíma. Ef einkennin eru langvarandi er ráðlagt að leita til heilsugæslu og sjá hvort um fæðingarþunglyndi sé að ræða.

Mamma Hitt foreldrið Fæðingarþunglyndi Tengslamyndun eftir fæðingu Innsæið Þegar heim er komið Barnið fyrstu dagana Vandaðu valið