Barnabónus
Innsæið
Það er mikilvægt að fylgja innsæinu ykkar á meðgöngu, í fæðingu og við uppeldi barnanna ykkar. Að hlusta á líkamann og treysta því sem þér finnst rétt fyrir þig og barnið þitt skiptir miklu máli. Það eru allar mæður að gera það allra besta fyrir barnið sitt. Það munu allir hafa skoðanir á því hvernig við gerum hlutina. Gamlar frænkur, mömmur, tengdamömmur og vinkonur manns keppast við að gefa manni bestu ráðin en þið fylgið því sem hjarta ykkar segir ykkur að sé rétt.
Við búum að frábærri mæðravernd á Íslandi. Öflugt teymi ljósmæðra, fæðingarlækna og nýburalækna sem að saman mynda frábæra heild sem hefur orðið til þess að landið okkar er með eina bestu fæðingarútkomu sem þekkist í heiminum. Þið eruð í mjög góðum höndum og getið alltaf leitað eftir ráðleggingum hjá fagaðilum.
