Uppskriftir

Steiktir kjúklingavængir með jógúrt ídýfu

Innihald

24 kjúklingavængir
2 hvítlauksrif, söxuð
1/8 tsk svartur pipar
Steinselja til skreytingar
1 tsk karrý
½ tsk turmerik
2 msk soya sósa
2 msk matarolía

Matreiðsla
Blandið öllum efnunum saman í skál
Setji út í sósuna í alla vængina. Geymið í kæliskáp í 1 til 2 klst.

Látið kryddlögin drjúpa af vængjunum, raðið í eldfast mót. Breiðið álpappír yfir. Eldið við 170C í 25 mín, þangað til vængirnir eru gullbrúnir.

--------------------------------------------------------------------------------
Kjúklingavængir með hvítlauk og parmesan fyrir fjóra

1 kg kjúklingavængir
2 dl ólívuolía
5 - 6 hvítlauksrif, smátt söxuð
10 - 15 dropar tabascosósa
2 dl parmesanostur, rifinn
2 dl brauðrasp
1 tsk pipar

Fyrst af öllu; stillið ofninn á 200c.
Í blandara setjið: olíu, hvítlauksrif og tabascosósu. Hrærið vel saman.
Hellið í djúpan disk.

Blandið parmesanostinum, brauðraspinu og pipar setjið í skál.

Veltið kjúklingavængjunum fyrst upp úr olíublöndunni og síðan upp úr osta- og brauðraspblöndunni.

Raðað vængjunum í eldfast mót. Rífið örlítið af parmessan yfir. Afgangnum af olíunni er hellt yfir vængina. Bakið í 30 - 45 mínutur. Gott að bera fram með salsasósum eða hvítlaukssósum.

Kryddsósa með steiktum kjúklingavængjum.

Kryddsósan:
½ tsk. cayenne krydd
2 hvítlauksgeirar, afhýddir og saxaðir
1 msk. brúnn sykur
¼ tsk. salt
½ bolli hrísgrjónaedik ( eða eitthvert gott edik)
2 dl. olífuolía

Setjið í matvinnsluvél og blandið vel saman.

1 fínt skorinn graslaukur.
1 msk. grófskorinn kóríander

Fyrst þar að útbúa jógúrt kjúklingavængjasósuna:

½ bolli hrein jógúrt
¼ tsk Tabasco/ HotChilli sósa (má sleppa)
3 msk mangó, smátt skorinn
1 msk steinselja, söxuð
1 lítill laukur, smátt skorinn
1/4 tsk Soyja sósa

Blandið efnunum í skál og hafið í ísskáp þangað til kjúklingurinn er borinn fram.
Svo er næst farið í að matreiða kjúklinginn.

Aðferð: Setjið kryddsósuna í skál og dreifið ofan á graslauknum og kóríandernum. Berið fram með grilluðum kjúklingavængjum (steiking í 10-15 mín.).