Uppskriftir

Spænskur kjúklingaréttur

Innihald

Einn bakki kjúklingabitar / eða heill kjúklingur skorinn í 11 bita !
1 - 2 hvítlauksrif brytjuð
1/4 bolli oregano
1/2 bolli rauðvínsedik
1/2 bolli olívuolía
1 bolli sveskjur,brytjaðar
1/2 bolli grænar olívur
1/2 bolli kapers
6 mulin lárviðarlauf.

Öllu þessu er blandað saman og sett yfir kjúklingabitana og geymt í ískáp, því lengur því betra; best  í einn sólarhring !!
Lagt í fat og einum bolla af púðusykri puðrað yfir kjúklingafatið ásamt einum bolla af hvítvíni.
(prófið mysu )
Sett í ofninn í 1 klukkustund. (hafa álpappír yfir í 30 mín)
Borið fram með hrísgrjónum og brauði.