Uppskriftir

Lambabógur

Innihald

1 lambsbógur, fremur vænn
3-4 laukar
1 heill hvítlaukur
2-3 lárviðarlauf
2-3 rósmaríngreinar, eða 2 tsk þurrkað rósmarín
½ tsk timjan, þurrkað
2 tsk piparkorn, grófsteytt
salt
300 ml hvítvín, þurrt
300 ml tómatsafi

Reyndar má líka nota læri í þennan rétt, en bógurinn er bragðmeiri og betur fitusprengdur en lærið og mörgum þykir kjötið betra.

Ofninn hitaður í 140 gráður. Kjötið sett í stórt steikarfat eða pott. Laukarnir grófsaxaðir. Hvítlauknum skipt í geira og þeir afhýddir en ekki saxaðir. Lauk, hvítlauk og kryddi dreift yfir kjötið, víni og tómatsafa hellt í pottinn, lok lagt yfir og sett í ofninn í 4 klst, en þá er hitinn hækkaður í 215 gráður og steikt í klukkutíma í viðbót. Litið í pottinn öðru hverju þegar líða fer á steikingartímann og vatni bætt við eftir þörfum. Smakkað til með pipar og salti. Kjötið, sem á að vera svo meyrt að það megi smeygja beinunum úr því, er borið fram í sósunni.

Að úrbeina bóg

Best er að leggja bóginn á bretti með skurðflötinn upp og skera skurð niður að herðablaðinu. Síðan er skorið meðfram herðablaðinu og kjötið losað frá því að ofan. Kjötinu er svo haldið frá og hnífnum rennt undir herðablaðið, þétt meðfram því, og losað um það. Því er svo lyft og það skorið alveg laust. Síðan er skorið meðfram bógleggnum og hann einnig fjarlægður.