Uppskriftir

Kjúklingur í rauðvíni / Coq Au Vin

Innihald

100 g beikon í bitum
3 msk hveiti
2-3 hvítlauksgeirar , saxaðir smátt
2 lárviðarlauf
1 msk olía
300 g perlulaukur eða skalottlaukur, afhýddur en heill
pipar , nýmalaður
1 flaska rauðvín (gjarnan Búrgundarvín.. ekki nauðsynlegt)
salt 2 msk
smjör 250 g
sveppir , helst kastaníusveppir
1 msk timjan , ferskt, eða 1 tsk þurrkað
Fyrir þá sem eru spenntir fyrir rómantískum og exótískum réttum, er hér Coq Au Vin franskur sveitakjúklingaréttur ( mjög þekktur) sem er hrein snilld. Þetta er ekki alveg hrist fram úr erminni en því betri er endanleg útkoma. Njótið þess að matreiða réttinn og snæðið í myrkrinu við kertaljós með góðu rauðvíni, góðu salati og kannski heitu löngu brauði.
 Coq Au Vin

Kjúklingabitar 1000 til 1400g  eða  heill kjúklingur skorinn í 9 bita !

Bitarnir settir í plastpoka ásamt hveiti, pipar og salti og hrist þar til kjúklingurinn er þakinn hveiti.
Látið liggja smástund, á meðan smjörið og olían er hitað í stórum, þykkbotna potti. 
Laukurinn settur út í og steiktur við meðalhita þar til hann er rétt að byrja að taka lit; hrært öðru hverju. 
Beikonið sett út í og steikt áfram þar til það er farið að brúnast. 
Þá er beikonið og laukurinn tekið upp með gataspaða og sett á disk. 
Kjúklingabitarnir settir í pottinn (í tvennu lagi ef þarf) og steiktir við meðalhita þar til þeir hafa brúnast á öllum hliðum. 
Nú er rauðvíninu hellt út í pottinn með kjúklingabitunum.
Laukur, beikon, hvítlaukur, lárviðarlauf og timjan sett í pottinn, hitað að suðu, lokað og látið malla við hægan hita í um 1 klst. – þá er sveppunum bætt út í og látið malla í hálftíma.
Kjúklingurinn tekinn  upp úr og settur á hitað fat. Laukur og sveppir teknir upp með gataspaða og raðað í kring. 
Hitinn hækkaður og sósan látin bullsjóða í nokkrar mínútur en síðan smökkuð til og hellt yfir kjúklinginn.
Borið fram strax.
Fyrir þá sem vilja skoða aðrar uppskriftir á Coq Au Vin eru hér fleiri12 3   og erlendar uppskriftir   45