Uppskriftir

Kjúklingasúpa með kókosmjólk. Hollt og gott

Innihald

2 kjúklingabringur
1 ds kókosmjólk
1 ds vatn (sama magn og kókosmjólkin)
kjötkraftur einn teningur ( má vera kjúklinga, nauta- eða grænmetis)
1 paprika
¼ blómkálshaus

Bringurnar þverskornar þunnar sneiðar. Kryddaðar með karríi og pipar eða kjúklingakryddi.
Léttsteiktar í olíu og settar til hliðar, smá stund.

Kókosmjólkin, vatnið og kjötkrafturinn á pönnuna og hrært saman.
Grænmetið brytjað smátt og sett út á pönnuna. Suðan látin koma upp, látið malla aðeins.
Kjúklingastrimlarnir hrærðir saman við,- látið malla við vægan hita í ca.5 mín.
Slökkvið undir og látið jafna sig smá stund.

Meðlæti; gott hvítt brauð og kannski glas af… bjór eða rauðvíni.