Uppskriftir

Kjúklingaréttur Campbella

Innihald

Hráefni
1 kjúklingur (keyptur steiktur og eldaður í Bónus)
1 dós Campbell´s Cream Chicken Soup
(.. eða einhver önnur sambærileg kjúklingasúpa í dós)
2 tsk. karry
Kjúklingakrydd
1/2 dl rjómi
Örlítið af sýrðum rjóma
Rifinn ostur

Þessi réttur er góður fyrir eiginmenn sem vilja hjálpa til við eldamennskuna og koma á óvart!
Þetta er einfaldur og ódýr réttur. Nægir vel fyrir 4 til 5 með meðlætinu.
Gott væri að kalla réttinn Huhn-Campebelle (framb: hun-kammmm-pelllle) og gera hann þannig dularfullan og svolítið „gourmet”.)

Matreiðsla: Súpan þynnt með rjóma þannig að úr verður sósa. Hún er krydduð með karrýi og svolitlu kjúklingakryddi og sýrða rjómanum blandað saman við. Kjötið er skorið af kjúklingnum í hæfilega góða (munn)-bita sett saman við sósuna og allt sett í smurt eldfast mót.
Rifnum osti ( t.d. motzarella sem er til rifinn í pokum í Bónus) er stráð yfir og bakað við 180 gráður í um 20 mínútur eða þar til að osturinn er vel bráðinn.
Með þessum rétti er gott að bera fram hrísgrjón, salat og brauð.