12 kjúklingaleggir – 3 pressuð hvítlauksrif
1 dl teriyaki-sósa eða Soyasósa
1/2 dl olía
Blandið saman hvítlauk, teriaki (soyja) sósu og olíu. Marinerið leggina í sósunni í 1-2 klst.
Hitið ofninn í 170c. Raðið leggjunum á eldfast mót, breiðið álpappir yfir og steikið í ca.30 – 45 mín.
Berið fram með hvítum hrísgrjónum og salati.
Kjúklingaleggir með paprikuflögum
8-10 kjúklingaleggir
5 dl muldar paprikuflögur,
parmesan ostur rifinn
pipar og salt
4 msk pestósósa ( einhver sem þér líkar vel)
2 msk olía
Hita ofninn í 200°C. Myljið flögurnar og blandið saman við parmesan ostinn. Blandið olíu og pestósósu og veltið leggjunum upp úr blöndunni. Kryddið leggina með salti og pipar. Veltið leggjunum upp úr muldu flögunum og raðið í eldfast mót.
Setjið í ofninn og bakið í 35 -45 mín.
Kjúklingaleggir með sojasósu
12 stk. kjúklingaleggir
3 msk. matarolía
salt og pipar
Sojasósa með grænmeti
3 stk. gulrætur, stórar
2 stk. rauðlaukur
1 dl ostrusojasósa
3 dl kjúklingasoð
1 msk. kúmen
4 msk. möndluflögur, brúnaðar á heitri, þurri pönnu
3 msk. matarolía
Brúnið kjúklingaleggina í heitri olíu, bragðbætið með salti og pipar og setjið síðan í 200°C heitan ofn í 20 mínútur. Berið fram með sojasósu með grænmeti og soðnum kartöflum eða grófu brauði.
Sojasósa með grænmeti
Skerið gulræturnar í litla bita og rauðlaukinn í sneiðar. Steikið grænmetið í 1-2 mín í heitri olíunni. Ostrusoja og kjúklingasoði bætt út í ásamt kúmeni. Sjóðið í 1-2 mínútur og skiptið á diska. Brúnuðu möndluflögunum stráð yfir.
Meðlæti 200-250 g hrísgrjón
Hrísgrjón soðin skv. leiðbeiningum á pakka.
