Skötuselurinn skorinn í 1 1/2 cm þykkar sneiðar.
Lúðan skorin á álíka bita einnig.
Sett í skál ásamt hörpuskel og risarækju.
Rósmarín, hvítlaukur og mandarína sett í matvinnsluvél og hún látin ganga þar til allt er orðið að mauki. Olíunni þeytt saman við og síðan límónusafa, pipar og dálitlu salti.
Hellt yfir fiskinn og blandað vel. Látið standa í a.m.k. hálftíma.
Grillið hitað vel.
Fiskbitarnir þræddir á teina til skiptis (ég setti hörpuskelfiskinn innst á teinana og raðaði þeim þannig á grillið að hitinn var ívið minni þar, af því að þeir þurfa svo litla eldun, og svo setti ég eina rækju á hinn endann). Sett á grillið (sem búið er að pensla með olíu) og grillað í 3-4 mínútur við góðan hita; snúið einu sinni. Borið fram strax.
Ath. ef notaðir eru tré-grillteinar, verður að leggja þá í vatn í ca. 1/2 klst. til 1 klst. fyrir notkun.
