Uppskriftir

Kjúklinga Gyros

Innihald

4 mtsk olívuolía
4 mtsk nýkreistur sítrónusafi
4 stór hvítlauksrif ( rifin á rifjárni)
2-3 tsk oregano
salt & pipar
250 -450 g fíntskorið kjúklingakjöt (í litla bita)
-blandið öllu saman og „marinerið" í allt að klukkustund.

Tvær lúkur salatblöð t.d. rucola eða klettasalat
2 tómatar skornir niður í litla bita
1 vænn rauður laukur fíntskorinn
2 mtsk nýkreistur sítrónusafi
2-5 mtsk fetaostur, kurlaður.

Gyroskjúklingur og tzatzik agúrkusalat.
Grískur réttur ( fimm stjörnur)
Hér er réttur sem ferðalangur kom með heim úr ferðalagi um Grikkland. Hann hreifst af þessum rétti og spurðist fyrir um samsetningu hans. Veitingamaðurinn las honum fyrir uppskriftina sem var hripuð niður á munnþurku. Þetta er skammtur fyrir 2-3 !
Fáar hitaeiningar, nánast engin fita. Nú fást frosnar kjúklingalundir í Bónus, sem eru sérlega góðar í þennan rétt.

Hitið góða (wok) pönnu og snöggsteikið kjúklinginn með því sem loðir við af marineringunni.
Blandið saman steiktum kjúklingnum, salatblöðum, tómatsneiðum, hráum lauk og sítrónusafa.
Setjið feta-ostbitana yfir.

Gúrkusalatið er með til bragðauka.

Tzatziki grískt gúrkusalat:
Löng agúrka, húðflett, og fínskorin- í litla bita
2 ds. hrein jógúrt
2 hvítlauksrif rifin niður á rifjárni.

Aðferð:
1. Setjið skorna agúrkuna í sigti, stráið salti yfir og látið drjúpa af í 1 klst.
2. Hellið jógúrtinu í kaffipoka (kaffifilter) og látið leka af.
3. Hrærið svo saman ( eftir ca 60 min) hvítlauk, jógúrt og agúrkunni.

Gyros er sígild þekkt Grísk kryddblanda ( marinering)
fyrir lambakjöt en hér notuð á kjúklingakjöt.